Hádegistónleikar – Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti


06.júní 2026 -06.júní 2026

Klukkan:

12:00

HÁDEGISTÓNLEIKAR – Lára Bryndís Eggertsdóttir orgel

Laugardagur 6. júní 2026 kl. 12


Lára Bryndís Eggertsdóttir byrjaði ung að læra á píanó og 14 ára gömul tók hún fyrstu skrefin sem afleysingaorganisti í Langholtskirkju. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar með hæstu einkunn vorið 2002 undir handleiðslu Harðar Áskelssonar og tveimur árum síðar burtfararprófi í söng frá Söngskólanum í Reykjavík.


Lára Bryndís flutti árið 2018 aftur heim til Íslands eftir 10 ára búsetu í Danmörku þar sem hún lauk meistaraprófi í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014. Aðalkennarar hennar þar voru Ulrik Spang-Hanssen á orgel, Lars Colding Wolf í semballeik, og Søren Kinch Hansen og Carsten Seyer-Hansen í kórstjórn. Einnig starfaði hún sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá barokksveitinni BaroqueAros í Árósum.

Fyrst eftir heimkomuna var Lára Bryndís organisti Hjallakirkju í Kópavogi og Neskirkju í Reykjavík, en er nú organisti og kórstjóri í Grafarvogskirkju. Meðfram organistastörfunum kennir Lára orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar og kemur fram sem orgel- og semballeikari við ýmis tækifæri.

Lára hefur haldið fjölmarga einleikstónleika á orgel, bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum, og hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar, þ.á.m. tónlistarverðlaun Rótarý á Íslandi árið 2014.


Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á tix.is

Aðgangseyrir 3.200 kr.


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR


--ENGLISH--


Matinée – Lára Bryndís Eggertsdóttir, organ

Saturday June 6th at 12:00

Tickets available at Hallgrímskirkja and on tix.is

Admission ISK 3.200